Fjármálaeftirlitið (FME) leggur árlega mat á áhættuþætti í starfsemi kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Ferlið felur m.a. í sér mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja sem leiðir af sér viðbótareiginfjárkröfu undir Stoð II (e. Pillar II).
Niðurstaða þessa árlega ferlis fyrir Arion banka liggur nú fyrir. Bankinn skal viðhalda viðbótareiginfjárkröfu sem nemur 3,1% af áhættugrunni, sem er hækkun um 0,2 prósentustig frá fyrra mati. Heildareiginfjárkrafa bankans, að teknu tilliti til eiginfjárauka, hækkar við það úr 19,8% í 20,0%.
Hækkun sveiflujöfnunarauka skv. ákvörðun FME í febrúar 2019 mun taka gildi fyrir íslenskar fjármálastofnanir í febrúar 2020 og við það hækkar eiginfjárkrafan í 20,3% að öðru óbreyttu.
Meðfylgjandi er gagnsæistilkynning FME.
Nánari upplýsingar veita Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla, [email protected], s: 856 6760 og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, [email protected], s: 856 7108