Categories: Public Companies

Islandsbanki hf.: Útboð á víxlum 2. október

Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð miðvikudaginn 2. október 2019.

Boðinn verður út 6 mánaða flokkurinn ISLA 20 0407.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 2. október en greiðslu- og uppgjörsdagur er 8. október 2019.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl – Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér:  https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.230 ma. kr. og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Sjötta árið í röð mældist Íslandsbanki efstur í Íslensku ánægjuvoginni  hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu árið 2018. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

IR Press

Share
Published by
IR Press

Recent Posts

OCC Announces Enforcement Actions for November 2024

WASHINGTON—The Office of the Comptroller of the Currency (OCC) today released enforcement actions taken against…

24 hours ago

Remarks by Secretary of the Treasury Janet L. Yellen on the 30th Anniversary of the Community Development Financial Institution Fund

As Prepared for Delivery Good afternoon. It’s an honor to welcome President Clinton to Treasury today…

2 days ago

Treasury Sanctions Gazprombank and Takes Additional Steps to Curtail Russia’s Use of the International Financial System

Treasury imposes sanctions on dozens of Russian banks, securities registrars, and finance officials; OFAC issues…

2 days ago

Acting Comptroller Testifies on State of the Federal Banking System

WASHINGTON—Acting Comptroller Michael J. Hsu today testified on the state of the federal banking system…

2 days ago

Remarks by Assistant Secretary for International Finance Brent Neiman on the U.S. Cross-Border Payments Agenda

As Prepared for Delivery Thank you very much for the opportunity to be here today, and…

4 days ago